Öryggi

![]() |
Örugg greiðslusíða gaxa.is |
Allar greiðslur sem fara fram hjá gaxa.is fara í gegnum örugga greiðslugátt hjá Korta, sem þýðir að kortaupplýsingarnar þínar eru öruggar og óæskilegir aðilar komast ekki yfir þær.
|
|||||
|
Öryggismál: PCI DSS - Payment Card Industry Data Security Standard
PCI er öryggisstaðall alþjóðlegu kortafyrirtækjanna Visa International og MasterCard International, sem heitir PCI DSS og stendur fyrir Payment Card Industry Data Security Standard. PCI öryggisstaðallinn er margþættur og setur mjög strangar öryggiskröfur sem ná yfir alla þætti og allar hliðar á gagnaöryggi í kerfisrekstri og rekstri fyrirtækja sem meðhöndla kortanúmer. Staðallinn gerir kröfu um að öll fyrirtæki sem meðhöndla kortaupplýsingar fullnægi viðkomandi kröfum. Á hverju ári þarf viðurkenndur úttektaraðili að framkvæma heildarúttekt til að votta að staðlinum sé fullnægt. Auk þess eru gerðar óvæntar árásir minnst fjórum sinnum á ári til að kanna hvort á einhvern hátt sé hægt að komast inn í kerfi viðkomandi fyrirtækja. Árásaraðilar notast ávallt við nýjustu þekktu aðferðir af FBI og SANS, sem eru helstu upplýsingaöryggisstofnanir heimsins. Kortaþjónustan fékk fyrst íslenskra fyrirtækja PCI vottun í lok ársins 2005 og var vottunin endurnýjuð í febrúar 2007. PBS í Danmörku, sem er megin þjónustuaðili fyrir MasterCard og Visa í Danmörku, er einnig með PCI vottun. Búast má við að á komandi árum munu einnig önnur fyrirtæki sem starfa í kortaviðskiptum á Íslandi uppfæra eigin öryggi og fá PCI vottun. Gaxa ehf - Draghálsi 10 - 110 Reykjavík - gaxa@gaxa.is
|



